Öryggi þitt

er í fyrirrúmi

Öryggi þitt

er í fyrirrúmi

Öryggið á oddinn

Mega Zipline leggur mikið upp úr öryggi gesta sinna og starfsmanna. Allir starfsmenn hafa fengið öryggisþjálfun og útbúnaðurinn er allur sérstaklega hannaður og prófaður í kanadískum sviflínugörðum. Auk þess hefur samskonar búnaður verið settur upp víða um Bandaríkin og í yfir 30 öðrum löndum, víðsvegar um heiminn. Búnaðurinn er þar að auki reglulega yfirfarinn af sérfræðingum. Allir gestir fá hjálma og fálkarnir fá sérstök hlífðargleraugu vegna hraðans. Flugstjórarnir okkar fara svo ítarlega yfir öryggisleiðbeiningar áður en lagt er af stað svo allir geti einbeitt sér að því að eiga góðan dag.

Bremsukerfið

Bremsurnar í fluglínunum okkar eru algjörlega sjálfvirkar og hannaðar til að taka við miklum þunga á miklum hraða. Hver lína hefur í raun þrjár bremsur fyrir þrefalt öryggi og tryggir líka mjúka lendingu. Þetta eru líklega bestu bremsur í bransanum. Það eina sem þú þarft að hugsa um er að brosa á leiðinni niður.

Viðhald og
öryggisprófanir

Starfsfólkið okkar og sérfræðingar fara reglulega yfir allan öryggisbúnað. Sérstakir ferlar eru fyrir eftirlit á búnaði. Sá búnaður sem mest reynir á er yfirfarinn daglega. Línan og bremsukerfið er skoðað mánaðarlega og tekið út af framleiðanda einu sinni á ári. Þess til viðbótar eru gerð ýmis önnur próf eins og segul- og rafleiðnipróf á línunum svo allt sé örugglega í lagi.

Sviflínan

The
Zipline

Línurnar eru í sérhannaðar og ofnar úr stáli á Ítalíu . Þær eru 22mm í þvermál og eiga að þola 17 tonn, það er meira en 4 fílar. Þessar línur eiga að þola nánast allt, meira að segja íslenskt veður.

Flugstjórarnir

Leiðsögumennirnir okkar eða flugstjóranrir eins og við viljum kalla þá sitja mjög stíft 50 tíma námskeið. Allir kunna fyrstu hjálp og eru sérfræðingar í að skemmta þér.

Kröfurnar okkar

* In certain wind conditions, we may raise the minimum weight.

Þetta verður skemmtilegt!

Við eigum von á því að þetta muni verða mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í Hveragerði. Þetta verður eitthvað svakalegt því þetta er kílómetri, sem þú svífur yfir gil, ár og fossa, þetta verður skemmtilegt

-Aldís Hafsteinsdóttir, Fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðisbæjar

Trigger Script on Button Click
we are now open daily*

*pending weather